Matt Targett er á láni hjá Newcastle frá Aston Villa og hefur verið mikilvægur hlekkur í frábæru gengi liðsins eftir áramót.
„Ég lít á hann sem nauðsynlegan hlekk í hópnumokkar," sagði Eddie Howe sem er stjóri Newcastle.
„Ég lít á hann sem nauðsynlegan hlekk í hópnumokkar," sagði Eddie Howe sem er stjóri Newcastle.
„Hans hugarfar, framferði, frammistöður og stöðugleiki hefur verið í hæsta gæðaflokki. Mér líkar mjög vel við hann."
Howe ætlar að setjast niður með Targett eftir tímabilið sem og öðrum leikmönnum félagsins.
„Ég ætla að ræða við Matt eftir að tímabilinu lýkur, þegar fótboltanum er lokið. Hann er búinn að vera frábær og hann er mjög vinsæll hér," sagði Howe.
Targett er 26 ára vinstri bakvörður sem á þrjú ár eftir af samningi sínum við Villa.
Athugasemdir