Fotbolti.net
20.06.20 - 19:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gústi Gylfa: Áttum undir högg að sækja frá fyrstu mínútu

Auglýsing
Gústi á hliðarlínunni fyrir viku síðan.

Gústi á hliðarlínunni fyrir viku síðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Ég vil fyrst og fremst þakka stuðningsmönnum fyrir frábæran stuðning. Varðandi leikinn vantaði aðeins upp á grimmdina og við gáfum Valsliðinu tíma á boltann og þeir refsa. Við áttum undir högg að sækja frá fyrstu mínútu," sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu, eftir 0-3 tap gegn Val í 2. umferð Pepsi Max-deildar karla í dag.
„Þetta eru erfiðar andstæðingar en við notum það ekki sem neina afsökun. Við vitum að í deild þeirra bestu mætum við erfiðum andstæðingum. Við áttum ekki mikið skilið út úr þessum leik."

Grótta mætir Hetti/Hugin í bikarnum á þriðju viku. Gústi segir sitt lið ætla sér að fara langt í bikarnum.

Hafði það áhrif á leikinn að Arnar Þór Helgason var ekki með í dag vegna leikbanns?

„Ég veit það ekki, við töpuðum þessum leik með ellefu menn inn á og gerðum fimm skiptingar. Menn að fá mínútur í Pepsi Max-deildinni."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.