
Búi: Algjörlega stöngin út hjá okkur í dag
Auglýsing


Mynd: Hulda Margrét


Mynd: Hulda Margrét
„Þetta hefu ábyggilega verið gríðarlega flottur leikur fyrir áhorfendur, þannig lagað,“ sagði Búi Vilhjálmur Guðjónsson þjálfari Hauka eftir 1-5 tap fyrir Fjölni í dag. „En algjörlega stöngin út hjá okkur.“
„Þeir skora úr þremur föstum leikatriðum sem hefur bara ekki gerst í sumar. Að það sé skorað úr föstum leikatriðum á okkur,“ sagði hann um gang leiksins.
Aðspurður um að Fjölnir hafi skorað í upphafi hálfleikjanna: „Þetta er hlutur sem við þurfum að fara að vinna í. Liðið og ég. Því við höfum verið að fá okkur mörg mörk í byrjun leikja.“
Aðspurður um að Fjölnir hafi skorað í upphafi hálfleikjanna: „Þetta er hlutur sem við þurfum að fara að vinna í. Liðið og ég. Því við höfum verið að fá okkur mörg mörk í byrjun leikja.“






