Fotbolti.net
20.07.26 - 18:24
Haraldur Örn Haraldsson
Kjarninn

Byrjunarlið FH og Breiðabliks: Jói Bjarna og Oliver byrja hjá FH

Byrjunarlið FH og Breiðabliks: Jói Bjarna og Oliver byrja hjá FH
Canon

Mynd: FH

Leikur FH og Breiðablik í Bestu deild karla hefst á eftir klukkan 19:15. Byrjunarliðin hafa verið birt en þaum má sjá hér fyrir neðan.

Lestu um leikinn: FH 0 - 0 Breiðablik

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir fjóra breytingar á liðinu frá síðasta leik, þegar FH vann Val 2-0. Nýju mennirnir Jóhannes Kristinn Bjarnason og Oliver Stefánsson koma beint í byrjunarliðið, auk Ísak Óla Ólafssyni og Gils Gíslasyni. Það eru þá fjórir sem færa sig á bekkinn, en það eru Grétar Snær Gunnarsson, Sverrir Páll Hjaltested, Arngrímur Bjartur Guðmundsson og Róbert Hugi Sævarsson.

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Það er einnig einn nýr sem byrjar hjá Breiðablik, en það er Hlynur Freyr Karlsson. Hinir sem koma inn í byrjunarliðið frá síðasta leik eru Aron Bjarnason, Dagur Örn Fjeldsted, og Þór Andersen Willumsson.

Byrjunarlið FH

Jökull Andrésson, Birkir Valur Jónsson, Oliver Stefánsson, Kjartan Kári Halldórsson, Adolf Daði Birgisson, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Ísak Óli Ólafsson (fyrirliði), Tómas Orri Róbertsson, Gils Gíslason, Úlfur Ágúst Björnsson, Baldur Kári Helgason

Byrjunarlið Breiðablik

Anton Ari Einarsson, Ásgeir Helgi Orrason, Ívar Örn Árnason, Arnór Gauti Jónsson, Aron Bjarnason (fyrirliði), Hlynur Freyr Karlsson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Dagur Örn Fjeldsted, Davíð Ingvarsson, Gabríel Snær Hallsson, Þór Andersen Willumsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.