20.09.19 - 19:24
Ívan Guðjón Baldursson
Ármann Pétur leggur skóna á hilluna á morgun

Mynd: Haukur Gunnarsson

Mynd: Haukur Gunnarsson
Ármann Pétur Ævarsson leggur takkaskóna á hilluna á morgun. Þetta staðfesti hann með færslu á Facebook.
Ármann Pétur er meðal leikjahæstu manna í sögu Þórs með 328 skráða keppnisleiki á vef KSÍ. Hann er goðsögn á Akureyri enda leikið fyrir Þór allan ferilinn.
Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir sautján árum og spilar þann síðasta á morgun, í nágrannaslag gegn Magna sem er jafnframt síðasti leikur tímabilsins í Inkasso-deildinni.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa skemmtilega kveðju Ármanns sem skoraði 78 mörk á ferlinum.