Javier Hernandez eða Chicharito eins og hann er iðulega kallaður skoraði fyrsta mark sitt fyrir Sevilla í 3-0 sigri á Qarabag í Evrópudeildinni í gær.
Chicharito er 31 árs gamall en hann kom til Sevilla frá West Ham fyrir 7,3 milljónir punda undir lok gluggans.
Hann spilaði 20 mínútur fyrir Sevilla í síðustu umferð á Spáni en byrjaði gegn Qarabag í Evrópudeildinni í gær. Hann skoraði þar fyrsta mark sitt fyrir félagið.
Hægt er að sjá aukaspyrnumark Chicharito hér fyrir neðan.
Chicharito has scored his first goal for Sevilla.
— Football HQ (@FootbaII_HQ) September 19, 2019
WHAT A FREE KICK! 🔥pic.twitter.com/1hKs5qqarC
Athugasemdir