Liverpool vann 2-0 sigur á Chelsea þegar liðin áttust við á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Sadio Mane skoraði bæði mörk Liverpool snemma í seinni hálfleiknum eftir að Andreas Christensen, varnarmaður Chelsea, var rekinn af velli í lok fyrri hálfleiks fyrir brot á einmitt Mane.
Chelsea fékk tækifæri til að minnka muninn af vítapunktinum en Alisson sá við Jorginho.
Mörkin og helstu atvik úr leiknum hafa verið birt á vef Morgunblaðsins og þau má sjá hér að neðan.
Chelsea 0 - 2 Liverpool
0-1 Sadio Mane ('50 )
0-2 Sadio Mane ('54 )
0-2 Jorginho ('75 , Misnotað víti)
Athugasemdir