Fotbolti.net
20.09.21 - 09:00
Aksentije Milisic

„Davíð á eftir að fara með tíð og tíma, hreinar línur"

„Davíð á eftir að fara með tíð og tíma, hreinar línur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eysteinn Húni Hauksson, annar af þjálfari Keflavíkur, var spurður út í Davíð Snæ Jóhannsson, leikmann liðsins eftir leikinn gegn Leikni Reykjavík í gær.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 0 - 1 Keflavík
Það hefur mikið verið talað um Davíð Snæ að undanförnu en Ítalska B-deildarliðið Lecce vill fá þennan efnilega leikmann.

„Ég þekki Davíð bara mjög vel og hef þekkt hann bara sko síðan hann byrjaði að tala og ég skil hann voðalega vel, hann hefur bara rifið sig frábærlega upp úr þessu. Hann mun fara eitthvað með tíð og tíma, það eru alveg hreinar línur í mínum huga," sagði Eysteinn þegar hann var spurður hvort hann skilji reiði Davíðs.

Keflavík gulltryggði sætið sitt í Pepsi Max deildinni í gær en Joey Gibbs gerði sigurmark liðsins gegn Leikni í Breiðholtinu.

Liðið mætir ÍA á heimavelli í lokaumferðinni en Skagamenn eru í harðri baráttu um sæti sitt í deildinni.

Eysteinn í skýjunum: Gulls ígildi að eiga mann sem getur tekið svona spyrnur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.