Alaves 2 - 0 Celta
1-0 Lisandro Magallan ('50 )
2-0 Lucas Perez ('82 )
1-0 Lisandro Magallan ('50 )
2-0 Lucas Perez ('82 )
Deportivo Alaves vann Celta Vigo 2-0 í spænsku deildinni í dag en bæði mörkin komu í síðari hálfleik.
Lisandro Magallan kom Alaves yfir á 50. mínútu áður en Lucas Perez bætti við öðru marki átta mínútum fyrir leikslok.
Alaves er í 13. sæti með 11 stig á meðan Celta Vigo er í 18. sæti með 9 stig.
Hrikaleg byrjun Celta Vigo á tímabilinu en liðið hafnaði í 17. sæti sæti spænsku deildarinnar á síðasta ári.
Athugasemdir