Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 20. nóvember 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Guardiola: Messi á að ljúka ferlinum hjá Barcelona
Messi verður samningslaus næsta sumar.
Messi verður samningslaus næsta sumar.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist vilja sjá Lionel Messi ljúka ferli sínum hjá Barcelona. Messi verður samningslaus næsta sumar en hann hefur verið orðaður við Manchester City.

„Leo Messi er leikmaður Barcelona og ef þú vilt biðja mig um álit þá er ég einstaklingur sem er mjög þakklátur Barcelona fyrir það sem þeir gerðu fyrir mig sem leikmaður. Þeir gáfu mér gjörsamlega allt, frá því að ég byrjaði í akademíunni," sagði Guardiola.

„Þess vegna vil ég að hann klári ferilinn þar. Það er það sem ég vil. Sem stuðningsmaður Barcelona vil ég að Lionel endi þar."

„Á þessu tímabili klárar hann samninginn og eftir það þá vitum við ekki hvað gerist og hvað er í huga hans."

„Núna er hann leikmaður Barcelona og félagaskiptagluggin opnar ekki fyrr en í júní eða júlí svo við erum með leiki og ýmislegt til að afreka á undan því. Ég get ekki sagt annað."

Athugasemdir
banner
banner
banner