21.01.23 - 19:26
Brynjar Ingi Erluson
Þungavigtarbikarinn: FH í úrslit eftir sigur á ÍBV

Finnur Orri Margeirsson skoraði annað mark FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 3 - 0 ÍBV
1-0 Vuk Óskar Dimitrijevic
2-0 Finnur Orri Margeirsson
3-0 Dagur Þór Hafþórsson
1-0 Vuk Óskar Dimitrijevic
2-0 Finnur Orri Margeirsson
3-0 Dagur Þór Hafþórsson
FH er komið í úrslit Þungavigtarbikarsins eftir 3-0 sigur á ÍBV í Skessunni í dag.
Vuk Óskar Dimitrijevic gerði fyrsta mark FH í leiknum áður en Finnur Orri Margeirsson bætti við öðru. Ekki oft sem hann er meðal markaskorara en hann hefur aðeins skorað eitt mark í deild- og bikar á ferli sínum.
Dagur Þór Hafþórsson gerði svo þriðja mark FH-inga til að loka leiknum og lokatölur 3-0.
FH er því sigurvegari B-riðils og mætir Breiðabliki í úrslitaleik Þungavigtarbikarsins. Keflavík mun spila um 3. sætið og þá mun ÍBV spila um 5. sæti bikarsins eftir viku.