sun 21. mars 2021 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Times: Wijnaldum búinn að ná samkomulagi við Barca
Mynd: Getty Images
Georginio Wijnaldum, miðjumaður Liverpool og hollenska landsliðsins, rennur út á samningi í sumar.

Wijnaldum er 30 ára gamall og hefur Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, miklar mætur á honum.

Hann hefur verið orðaður við Barca í rúmt ár og nú greinir Times frá því að hann sé búinn að ná samkomulagi við félagið.

Ekki er greint frá smáatriðum samningsins og eru spænskir fjölmiðlar ósammála Times. Þeir segja að viðræður muni ekki hefjast fyrr en eftir fund Ronald Koeman með Joan Laporta nýkjörnum forseta Barcelona.

Wijnaldum hefur gert 22 mörk í 225 leikjum á tæpum fimm árum hjá Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner