Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 21. júní 2022 10:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mane lentur í Munchen
Mynd: EPA
Sadio Mane er að ganga í raðir Bayern Munchen frá Liverpool.

Mane er þrítugur sóknarmaður sem hefur verið hjá Liverpool frá árinu 2016.



Sky Sports segir frá því að einkaþota með Mane innanborðs hafi lent á flugvellinum í Munchen í morgun.

Hann er á leið í læknisskoðun og verður í kjölfarið kynntur sem nýr leikmaður Bayern.

Bayern, sem hefur orðið þýskur meistari tíu tímabil í röð, mun greiða 35 milljónir punda fyrir Senegalann.
Athugasemdir
banner
banner
banner