Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 21. september 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
Real Madrid og Juventus vilja fá Cavani
Mynd: Getty Images
Juventus og Real Madrid vilja bæði fá framherjann Edinson Cavani samkvæmt frétt ESPN í dag.

Hinn 33 ára gamli Cavani er félagslaus en samningur hans við PSG rann út í júní.

Úrúgvæinn hefur átt í viðræðum við Juventus en börn hans búa á Ítalíu.

Real Madrid er hins vegar einnig að skoða að fá Cavani í sínar raðirr samkvæmt fréttum dagsins.

Real þyrfti þó að losa sig við framherja af launaskrá en Luka Jovic, Borja Mayoral eða Mariano Diaz gætu farið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner