Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. september 2021 18:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Það er varla hægt að lýsa henni"
Icelandair
Sveindís Jane á landsliðsæfingu.
Sveindís Jane á landsliðsæfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane Jónsdóttir, framherji Íslands, segist líta upp til Vivianne Miedema, sóknarmanns Hollands.

Hún hefur skorað 83 mörk í 100 landsleikjum fyrir Holland og leikur með Arsenal á Englandi þar sem hún getur eiginlega ekki hætt að skora.

Sveindís er ungur sóknarmaður sem er rétt að byrja sinn feril. Hún var spurð að því á fréttamannafundi á dögunum hvort Miedema væri fyrirmynd.

„Það er varla hægt að lýsa henni; hún er svo geggjuð," sagði Sveindís.

„Hún er örugglega með þrjú mörk í leik að meðaltali eða eitthvað. Hún er frábær leikmaður og ótrúlega góð í að koma sér í færi. Ég horfi mikið á hana og reyni að læra af henni. Ég er spennt í að sjá hana í leiknum. Vonandi gengur ekki rosalega vel hjá henni að skora. En já, hún er frábær leikmaðurl," sagði Sveindís jafnframt.

Ísland og Holland eigast við í undankeppni HM í kvöld. Bæði Sveindís og Miedema byrja leikinn en hægt er að fara í beina textalýsingu með því að smella hérna.

Sjá einnig:
Þurfum að passa að Miedema fái ekki boltann
Athugasemdir
banner
banner
banner