Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hrósaði framherjanum Marcus Rashford eftir frammistöðu hans í 1-1 jafnteflinu gegn Liverpool í gær.
Rashford skoraði mark Manchester United í leiknum eftir fyrirgjöf Daniel James.
Solskjær var ánægður með markið og frammistöðuna hjá Rashford í gær en framherjinn hefur legið undir gagnrýni að undanförnu.

„Þetta var besti leikur hans í kannski 10 mánuði að mínu mati," sagði Solskjær eftir leikinn.
„Hann hleypur bakvið öxlina á varnarmönnum, eltir boltann, verst vel og heldur boltanum. Þú sérð að hann er að vaxa og verða sterkari."
Athugasemdir