Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 21. nóvember 2021 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Jonathan Glenn tekur við ÍBV (Staðfest)
Jonathan Glenn er nýr þjálfari ÍBV
Jonathan Glenn er nýr þjálfari ÍBV
Mynd: Knattspyrnudeild ÍBV
Jonathan Glenn er nýr þjálfari kvennaliðs ÍBV en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

Glenn er vel kunnugur staðháttum í Eyjum en hann kom fyrst til félagsins sem leikmaður árið 2014 og spilaði þá með liðinu í efstu deild.

Hann spilaði tvö tímabil með liðinu áður en hann samdi við Breiðablik. Hann hefur einnig spilað fyrir Fylki en snéri svo aftur til ÍBV árið 2019.

Þar lék hann tvö tímabil áður en hann lagði skóna á síðasta ári og hefur verið að starfa sem yngri flokka þjálfari hjá félaginu.

Nú er hann tekinn við kvennaliði félagsins og mun stýra því á næsta tímabili.

ÍBV hafnaði í 7. sæti deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner