Fotbolti.net
22.05.20 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson

Deeney mun stýra útvarpsþætti hjá talkSport

Troy Deeney er á leið í útvarp

Troy Deeney er á leið í útvarp

Canon

Mynd: Getty Images

Enski framherjinn Troy Deeney hefur ákveðið að taka við hlutverki sem gestastjórnandi morgunþáttarins á talkSport en þetta kemu fram í ensku miðlunum.
Deeney, sem er á mála hjá Watford, æfir ekki með félaginu þessa dagana af hræðslu við það að smitast af kórónaveirunni en fimm mánaða sonur hans glímir við öndunarerfiðleika.

Hann mun taka að sér áhugavert hlutverk á næstunni en hann verður gestastjórnandi morgunþáttarins hjá talkSport þar sem hann verður með Laura Woods.

Deeney tekur við sem gestastjórnandi af Andrew Flintoff sem þarf að hætta í bili en hann er að hefja tökur á sjónvarpsþættinum Top Gear.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.