Fotbolti.net
22.07.19 - 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sheffield Wednesday kvartar til úrvalsdeildarinnar vegna Newcastle

Sheffield Wednesday kvartar til úrvalsdeildarinnar vegna Newcastle
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield Wednesday er alls ekki sátt við það hvernig Steve Bruce yfirgaf félagið og tók við sem stjóri Newcastle.

Í kvöld tilkynnti Sheff. Wed. Newcastle til úrvalsdeildarinnar og kvartaði undan því hvernig staðið var að verki.

<i>„Eftir að Newcastle tilkynnti þann 17. júlí að félagið hafi ráðið fyrrum stjóra Sheffield Wednesday, Steve Bruce, og þjálfaralið hans, Steve Agnew og Stephen Clemence, þá staðfestir Sheffield Wednesday að félagið hafi í dag tilkynnt úrvalsdeildinni um starfshætti Newcastle þegar félagið fékk starfskraftana til sín,"</i> segir í tilkynningu Sheffield Wednesday.
„Úrvalsdeildin mun nú rannsaka málið og skoða ásakanir okkar og félagið mun ekki svara frekar fyrir þetta mál á meðan á rannsókn stendur," sendir Sheffield Wed. frá sér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.