Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 22. júlí 2021 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Völsungur fær Elvar frá Þór (Staðfest)
Í leik með Völsungi í fyrra.
Í leik með Völsungi í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í 2. deild.

Elvar Baldvinsson er kominn með leikheimild með liðinu en hann kemur á láni frá Þór út tímabilið.

Elvar er 24 ára uppalinn Völsungur. Hans fyrsta tímabil með meistaraflokki var árið 2014 og var hann hjá Völsungi út tímabilið 2019.

Þá skipti hann yfir í Þór en var lánaður í Völsung um sumarið. Elvar hefur skorað 31 mark í 144 leikjum fyrir Völsung í deild og bikar.

Elvar spilaði einn leik með Þór í fyrra og hafði spilað fjóra í Lengjudeildinni í sumar.

Völsungur mætir Fjarðabyggð á heimavelli á morgun. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner