Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. nóvember 2020 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nefndu hurð eftir Milner á nýja æfingasvæðinu
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur flutt á nýtt æfingasvæði sitt, AXA æfingasvæðið í Kirkby, sem leysir Melwood af hólmi.

Æfingasvæðið er bæði fyrir aðalliðið og yngri lið félagsins og lýsir Jurgen Klopp því sem nánast fullkomnu. Kvennalið félagsins æfir ekki þarna, að minnsta kosti ekki núna.

Sjá einnig:
Myndaveisla: Glænýtt og nánast fullkomið æfingasvæði Liverpool

Í viðtali eftir 3-0 sigur á Liverpool á Leicester, kom það fram að ein hurð á æfingasvæðinu hefði verið nefnd eftir James Milner, leikmanni liðsins.

„Þeir settu upp hurð og ákváðu að vera fyndnir með því að nefna hana eftir mér. Þetta er ekki stytta eða stúka, en hurð hjá Liverpool - ég tek það," sagði Milner hress eftir flotta frammistöðu hans í sigrinum á Leicester.


Athugasemdir
banner
banner
banner