Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 23. janúar 2021 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Íslenska uppeldiskerfið í heimsklassa"
Guðný Árnadóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir. Tvær efnilegar sem eru farnar út í atvinnumennsku.
Guðný Árnadóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir. Tvær efnilegar sem eru farnar út í atvinnumennsku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daði Rafnsson.
Daði Rafnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótboltaþjálfarinn Daði Rafnsson skrifar virkilega skemmtilegan þráð á Twitter-síðu sinni þar sem hann segir frá því að atvinnumennska kvenna í fótbolta sé að breytast.

Núna upp á síðkastið hafa margar fótboltakonur haldið frá Íslandi og farið erlendis í atvinnumennsku. Jafnframt hafa nokkrar skipt á milli félaga erlendis.

Þetta er mikið fagnaðarefni og gefur vonandi góð fyrirheit fyrir EM kvenna sem fer fram í Englandi 2022. Eru leikmenn að fara í öflugar deildir og verður gaman að fylgjast með þeim þar.

Daði, sem starfar sem yfirmaður knattspyrnuþróunar hjá HK, segir að mörg glerþök muni liggja í valnum eftir tíu ár.

„Af hverju eru svona margar íslenskar knattspyrnukonur að semja erlendis? Af því að atvinnumennskan er að breytast. Lið eru að undirbúa sig undir færslu kvennaboltans nær karlaumhverfinu," skrifar Daði.

„Árið 2014 var ég í Dortmund og stjórnendur ypptu öxlum: "warum frauen? (af hverju konur?)" Í Mönchengladbach var eigandinn hins vegar farinn að skipa fyrir að hann vildi sjá ungar konur geta speglað sig í félagslitunum. Dortmund mun hefja keppni í haust."

„Hvati liðanna er tvíþættur, tekjumöguleikar með því að bæta helming mannkyns í viðskiptamannahópinn sem kaupir treyjur, áskriftir og fleira. En hann er einnig í mörgum tilvikum drifinn áfram af aukinni samfélagslegri meðvitund. Dortmund, Barcelona, Real Madrid og Man Utd segjast vera mikilvægar stofnanir í samfélagi sínu. Margir innan félaganna hafa bent á að það sé ómögulegt án þess að vera með kvennalið og drifið áfram breytingar."

„Fyrirmyndin er Lyon. Aulas, forsetinn, hefur uppskorið ekki bara í titlum heldur jákvæðum áhrif á allt félagið. Hann spáir því töluverðri aukningu á tekjum inn í kvennaboltann þennan áratuginn og telur fjárfestinguna góða. Á Íslandi setja til dæmis Valur og Breiðablik yfirlýstan metnað í kvennastarfið sem hefur jákvæð áhrif á alla umgjörð félagsins. Þau og fleiri eru nú farin að byggja módel á að selja og lána leikmenn sína erlendis."

Daði segir að íslenska uppeldiskerfið sé í heimsklassa og að Sara Björk Gunnarsdóttir, sem varð Evrópumeistari með Lyon á síðasta ári, hafi mikil áhrif á að leitað sé til Íslands að leikmönnum.

„En af hverju íslenskir leikmenn í stórlið erlendis? Þær sem eru að leiða bylgjuna núna voru 8-14 ára þegar landsliðið fór á EM 2009. Sýnilegar fyrirmyndir og aukinn áhugi gaf þeim vítamínssprautu. Meiri áhugi félaganna, þjálfara og foreldra ýtti enn frekar undir. Íslenska uppeldiskerfið er í heimsklassa, við vanmetum það rosalega og þetta eru mjög efnilegir leikmenn. Sara Björk hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á ímynd íslenskra knattspyrnukvenna og rutt brautina meira en fólk áttar sig á."

Að lokum skrifar Daði: „Í boði eru ekki miklar upphæðir í samanburði við karlaboltann. Enn eru stór svæði sem gefa af sér frábæra leikmenn karlamegin vanþróuð. Umboðsmennska og 'scouting' eru kaos í kvennaboltanum... En það munu mörg glerþök liggja í valnum eftir tíu ár. Þetta er rétt að byrja."

Sjá einnig:
Atvinnumennskan kallar á íslenskar fótboltakonur


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner