Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 23. ágúst 2019 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Sancho aðalmaðurinn í endurkomu Dortmund
Jadon Sancho er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar eftir tvær umferðir.
Jadon Sancho er kominn með tvö mörk og tvær stoðsendingar eftir tvær umferðir.
Mynd: Getty Images
Köln 1 - 3 Dortmund
1-0 Dominick Drexler ('29)
1-1 Jadon Sancho ('70)
1-2 Achraf Hakimi ('86)
1-3 Paco Alcacer ('94)

Nýliðar Köln mættu Borussia Dortmund í fyrsta leik helgarinnar í þýska boltanum og komust yfir með marki frá Dominick Drexler í fyrri hálfleik.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en gestirnir frá Dortmund skiptu um gír eftir leikhlé. Heimamenn leiddu þó þar til á 70. mínútu þegar Jadon Sancho jafnaði.

Dortmund hélt áfram að stjórna leiknum og skoraði varnarmaðurinn Achraf Hakimi með skalla á 86. mínútu.

Heimamenn blésu þá til sóknar en gestirnir refsuðu með hraða sínum í skyndisókn. Sancho komst þá upp völlinn óáreittur og lagði boltann á Paco Alcacer sem skoraði auðvelt mark.

Dortmund er því með fullt hús stiga eftir tvær umferðir og markatöluna 8-2. Köln er stigalaust eftir 2-1 tap gegn Wolfsburg í fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner