23.09.26 - 15:46
Elvar Geir Magnússon
Gareth Owen hættur hjá Val (Staðfest)

Gareth Owen hefur látið af störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell og Gareth Owen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gareth Owen hefur látið af störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gareth Owen er hættur sem yfirmaður fótboltamála hjá Val en þetta kemur fram í tilkynningu Vals. Owen var ráðinn til Vals síðasta vetur en þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir Hlíðarendafélagið. Karlaliðið endaði í neðra umspilinu og kvennaliðið situr í neðsta sæti.
Í upphafi mánaðarins sagði Fótbolti.net frá því að samkvæmt heimildum okkar væri Owen á útleið frá Val.
„Hann er starfsmaður félagsins, ég sá umfjöllunina hjá ykkur (á Fótbolta.net), veit ekki hvaða þvæla það er. Að öllu óbreyttu verður hann áfram," sagði Styrmir Þór Bragason, formaður fótboltadeildar Vals, fyrir nokkrum vikum. Owen hefur nú látið af störfum á Hlíðarenda.
Það eru breytingar framundan hjá Val eftir tímabilið. Halldór Árnason tekur við þjálfun liðsins. Chris Brazell, sem var aðstoðarþjálfari Hermanns Hreiðarssonar áður en Hermann var rekinn, stýrir liðinu til bráðabirgða út tímabilið, hann mun að öllum líkindum kveðja félagið að því loknu líkt og Owen.

Tilkynning Vals
Gareth Owen hefur látið af störfum sem tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Vals.
Er þetta sameiginleg niðurstaða Gareths og stjórnar knattspyrnudeildar en líkt og áður hefur verið kynnt eru breytingar framundan hjá félaginu eftir tímabilið.
Knattspyrnudeildin vill þakka Gareth innilega fyrir störf hans í þágu Vals og sérstaklega þá vinnu sem hann hefur lagt í að lyfta upp yngri leikmönnum félagsins. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni og komandi verkefnum.
Gareth vill sjálfur koma eftirfarandi skilaboðum til Valsara:
„Það hefur verið mikill heiður að fá að vera hluti af félaginu og starfa með svo metnaðarfullum leikmönnum, starfsfólki og stjórnarmönnum. Í ljósi þeirra breytinga sem eru fram undan og þess að félagið er að taka næsta skref í sinni vegferð erum við sammála um að nú sé eðlilegur tími fyrir mig að kveðja. Saman höfum við lagt góðan grunn að starfinu innan félagsins sem mun nýtast Val vel til framtíðar. Ég vil þakka öllum hjá félaginu fyrir samstarfið og óska Val alls hins besta á komandi árum.“