Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 24. janúar 2020 09:17
Magnús Már Einarsson
Meiðsli Mane skýrast betur í dag
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vonast til að það komi í ljós í dag hversu lengi er hægt að áætla að Sadio Mane verði frá keppni.

Mane fór af velli á 33. mínútu í 2-1 sigrinum á Wolves í gær en Takumi Minamino leysti hann af hólmi.

„Það er algjör synd að Sadio varð að koma af velli," sagði Klopp eftir leik.

„Vonandi er þetta ekki of slæmt, bara smá vöðva tognun, en við sjáum það á morgun (í dag)."

Liverpool mætir Shrewsbury í enska bikarnum á sunnudag áður en liðið leikur gegn West Ham og Southampton í ensku úrvalsdeildinni í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner