Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 24. maí 2021 21:55
Matthías Freyr Matthíasson
Arnar Grétars: Við viljum meira
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Grétarsson þjálfari KA var sáttur við sigur sinna manna á Stjörnunni í kvöld.

„Ég er búinn að sjá alla leikina hjá Stjörnunni og ég held að stigasöfnun hjá þeim sé ekki alveg í samræmi við spilamennskuna."

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  1 KA

„Stjarnan var með tvö stig og eru sært dýr og þeir komu mjög grimmir til leiks. Við vorum ekki að leysa það nógu vel í fyrri hálfleiknum og áttum að gera betur".

„Það var ekki mikið um opnanir í leiknum og ég held að fyrsta færið í leiknum hafi Grímsi fengið á 65. mínútu og það var dauðafæri og slæmt þegar maður fær færi að nýta það ekki."

„Elfar Árni skorar svo gott mark og við erum að þéttast í röðunum og erum að fá menn til baka og við getum skipt inn á núna og það skiptir máli."


„Hingað til hefur þetta gengið mjög vel. Við höfum verið óheppnir með meiðsli og annað og það hefur sett strik í reikninginn. Við höfum aldrei verið að væla yfir því, það er bara þannig, það meiðist einhver og það kemur maður í manns stað. Menn vita það að þetta er langt mót og við erum búnir með sex leiki og það er gott að vera komnir með þessi stig og við erum nálægt toppnum en þetta er fljótt að breytast og menn þurfa að halda löppunum á jörðinni."

Nánar er rætt við Arnar í sjónvarpinu hér að ofan. Beðist er velvirðingar á því hversu mikið myndavélin hristist.
Athugasemdir
banner
banner