Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 24. júní 2020 20:18
Mist Rúnarsdóttir
Lillý: Þær eru svo geggjaðar þarna frammi
Lillý var traust í vörn Vals í kvöld.
Lillý var traust í vörn Vals í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þór/KA hafa verið mjög sterkar í síðustu tveimur leikjum og við vissum alveg að þetta yrði erfiður leikur. Það var virkilega sterkt að ná marki inn í byrjun og það gaf okkur gott start inn í leikinn svo ég er mjög sátt," sagði Lilly Rut Hlynsdóttir varnarmaður Vals eftir að liðið vann 6 - 0 sigur á Þór/KA í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 6 -  0 Þór/KA

„Við ætluðum að vera þolinmóðar og láta boltann ganga. Okkur datt í hug að þær myndu droppa niður svo við ætluðum að vera skynsamar og þolinmóðar og þetta myndi koma," bætti hún við.

Hlín Eiríksdóttir kom Val yfir eftir 11 mínútna leik og skoraði þrennu í leiknum auk þess sem Elín Metta Jensen skoraði tvo áður en Dóra María Lárusdóttir skoraði sjötta markið í lokin.

„Það var frábært að ná markinu inn svona snemma. Þá gátum við haldið boltanum og verið rólegar. Þær eru svo geggjaðar frammi og eru alltaf að fara að skora. Ég veit ekki hvað þær voru að gera í Covid því þær eru geggjaðar."

Nánar er rætt við Lillý í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner