24.10.26 - 09:54
Brynjar Ingi Erluson
Segja að Jorginho hafi fallið á lyfjaprófi

Jorginho í leik með Flamengo

Mynd: EPA

Jorginho í leik með Flamengo

Mynd: EPA
Brasilískir fjölmiðlar fullyrða að Jorginho, miðjumaður Flamengo, hafi fallið á lyfjaprófi og gæti hann átt yfir höfði sér langt keppnisbann.
Engin opinber staðfesting hefur borist frá Flamengo, en samkvæmt fréttum brasilískra miðla hefur sýni úr lyfjaprófi eins leikmanns félagsins reynst jákvætt fyrir ólöglegum efnum.
Miðlarnir halda því fram að um sé að ræða Jorginho, en niðurstöðu úr mótgreiningu á B-sýni er nú beðið. Hún mun skipta miklu máli þegar kemur að því að skera úr um hvort hann hafi brotið gegn lyfjareglum.
Reynist B-sýnið einnig jákvætt gæti Jorginho átt yfir höfði sér sex mánaða til tveggja ára keppnisbann. Lengd þess myndi meðal annars ráðast af því hvaða efni fannst í sýninu og aðstæðum málsins.
Fréttirnar koma á slæmum tíma fyrir Flamengo, sem féll úr leik í undanúrslitum Copa Libertadores á dögunum.
Jorginho er 34 ára gamall og var á sínum tíma í hópi bestu miðjumanna heims. Hann lék lykilhlutverk þegar Ítalía varð Evrópumeistari árið 2021 og hafnaði í þriðja sæti í kjörinu um Ballon d'Or sama ár.
Hann lék með bæði Chelsea og Arsenal á Englandi, en með Chelsea varð hann Evrópumeistari og heimsmeistari félagsliða.