Fotbolti.net
23.10.26 - 22:30
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Lokauppgjör í Bestu deild kvenna

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er markadrottning Bestu deildarinnar 2026 með 19 mörk fyrir Breiðablik.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er markadrottning Bestu deildarinnar 2026 með 19 mörk fyrir Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik eykur forskot sitt á önnur félög í söfnun Íslandsmeistaratitla og bæði ÍBV og Grindavík náðu sínum besta árangri í langan tíma þegar keppni í Bestu deild kvenna 2026 lauk í kvöld.

Elísa Viðarsdóttir er hætt eftir sjöunda stóra titilinn, Breiðablik eignaðist enn eina markadrottninguna þegar Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir lauk tímabilinu með fimm marka sýningu gegn FH. Hvaða Blikar hafa fengið þennan titil frá árinu 1980?

Agla María Albertsdóttir er markahæst af núverandi leikmönnum Bestu deildarinnar. Fimmtán hafa skorað fleiri mörk en hún, og hverjar eru það?

Þór/KA á þá tvo leikmenn sem hafa spilað lengst án þess að missa úr leik. KR-ingurinn Anna Björk Kristjánsdóttir kemur líka við sögu. Meira um þetta í greininni hér fyrir neðan.

Úrslit í 22. og 23. umferð:
16.10. Grindavík/Njarðvík – ÍBV 2-1
18.10. FH – Þróttur 0-4
19.10. Stjarnan – Breiðablik 0-1
23.10. Breiðablik – FH 6-2
23.10. ÍBV – Stjarnan 2-0
23.10. Þróttur – Grindavík/Njarðvík 3-2

Efri hluti, lokastaða: Breiðablik 52, FH 43, ÍBV 33, Þróttur 32, Grindavík/Njarðvík 29, Stjarnan 27.
Neðri hluti, lokastaða: Fram 26, Þór/KA 25, Valur 24, Víkingur 22.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.