Fotbolti.net
23.10.26 - 14:22
Elvar Geir Magnússon

Carrick hélt tilfinningaþrungna ræðu í upphafi fundar

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, situr undir mikilli pressu en hann hóf fréttamannafund sinn í dag á því að flytja tilfinningaþrungna ræðu sem stóð í fimm og hálfa mínútu.

Hann berst fyrir því að halda starfi sínu og útilokar ekki að setja fyrirliðann Bruno Fernandes á bekkinn í leiknum gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford á sunnudag.

„Við höfum ekki átt góðu gengi að fagna undanfarið, það er nokkuð augljóst. Þetta var slæmt kvöld á miðvikudaginn og mér sárnaði að sjá okkur spila svona illa. Þetta var óásættanlegt," sagði Carrick

„Það er ábyrgð mín að senda lið inn á völlinn sem er fulltrúi þessa félags og stuðningsmanna þess, lið sem stuðningsmenn geta verið stoltir af. Við höfum fjarlægst þetta að undanförnu. Það er mikilvægt að við gerum okkur öll grein fyrir því. Grunnurinn og gildin hjá þessu félagi hafa verið til staðar í mörg ár. Ég skil þau fullkomlega."

Eftir niðurlægjandi 4-1 tap gegn Como á miðvikudag lýsti Bruno Fernandes fyrirliði yfir efasemdum um upplegg Carrick og hans teymis. Þegar Carrick var spurður út hvort hann hefði íhugað að setja Fernandes á bekkinn svaraði hann ákveðinn:

„Það mikilvægasta fyrir mig er liðið, hópurinn og tengingin innan hans. Þetta snýst um félagið. Ég mun alltaf gera það sem er best fyrir það."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.