Fotbolti.net
24.10.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fá vegleg verðlaun fyrir að nota ekki síma

Fá vegleg verðlaun fyrir að nota ekki síma
Canon

Mynd: EPA

Dortmund hefur ákveðið að fara áhugaverða leið til að láta stuðningsmenn liðsins nota símann sinn minna á leikjum liðsins.

Það er mikill pirringur meðal stuðningsmanna yfir fólki sem er mikið með símann á lofti ýmist að taka myndir eða myndbönd.
Félagið hefur því gripið í það ráð að gefa fólki kost á því að virkja stillingu í opinberu appi félagsins sem fylgist með hversu oft þeir opna símann sinn á meðan leik stendur.

Stuðningsmenn fá fleiri stig eftir því sem þeir nota símann minna og Dortmund gefur verðlaun á borð við áritaðar treyjur og gjafabréf til þeirra sem nota símann minna.

Þetta er að sjálfsögðu valfrjálst en þessi keppni mun byrja í dag þegar Dortmund fær Frankfurt í heimsókn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.