Fotbolti.net
24.10.26 - 09:25
Brynjar Ingi Erluson

Villa íhugar að hætta við kaupin á Garnacho - Mögulegir arftakar Carrick efins

Garnacho hefur ekki heillað með Villa

Garnacho hefur ekki heillað með Villa

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins og það er ýmislegt spennandi í pakkanum að þessu sinni.
Aston Villa íhugar alvarlega að hætta við að kaupa Alejandro Garnacho (22) af Chelsea ef hann nær ekki að bæta frammistöðu sína. Garnacho er á láni hjá Villa út tímabilið. (Football Insider)

Enski vængmaðurinn Jadon Sancho (26) vill ræða við þjálfara Getafe áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann gangi til liðs við félagið. (Telegraph)

Brighton ætlar ekki að selja miðjumanninn Diego Gomez (23) í janúar þrátt fyrir áhuga frá Atlético Madríd og AC Milan. (TeamTalk)

Antonio Rüdiger (33), varnarmaður Real Madrid, er staðráðinn í að vera áfram hjá spænska félaginu þrátt fyrir að hafa verið orðaður við Tottenham. (Bild)

Þjálfararnir sem hafa verið orðaðir við Manchester United sem mögulegir arftakar Michael Carrick telja að enginn hafi stjórn á búningsklefanum og að leikmenn tali allt of mikið opinberlega. (Telegraph)

Liverpool er tilbúið að virkja 46 milljóna punda kaupákvæði í lánssamningi úrúgvæska varnarmannsins Ronald Araujo (27), sem kom frá Barcelona í ágúst. (Marca)

Framtíð brasilíska framherjans Endrick (20) hjá Real Madrid er enn í óvissu. Hann gæti farið á láni í janúar þrátt fyrir að Jose Mourinho, þjálfari félagsins, hafi útilokað þann möguleika. AC Milan og Roma hafa bæði áhuga á honum. (Marca)

Spænski sóknartengiliðurinn Dani Olmo (28) hefur engin áform um að yfirgefa Barcelona þrátt fyrir að hafa verið orðaður við Bayern München. (Sky Sports)

Atlético Madríd íhugar að virkja 25 milljóna evra kaupákvæði í lánssamningi kanadíska framherjans Jonathan David (26), sem er í láni frá Juventus. Félagið hefur þó ekki tekið endanlega ákvörðun. (Sky Sports)
Hver tekur við af Carrick?

Hver tekur við af Carrick?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.