Fotbolti.net
24.10.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rooney gagnrýndi leikmenn Man Utd harkalega - „Eins og smábörn"

Rooney gagnrýndi leikmenn Man Utd harkalega - „Eins og smábörn"
Canon

Mynd: EPA

Það er algjör krísa hjá Man Utd þessa dagana en Michael Carrick er undir mikilli pressu.

Lisandro Martínez var sektaður fyrir að gagnrýna stjórnina fyrir að styrkja liðið ekki betur. Þá gagnrýndi Bruno Fernandes þjálfarateymið fyrir uppleggið í 4-1 tapi gegn Como í vikunni.
Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Man Utd, gagnrýndi hegðun leikmannana.

„Þessir leikmenn eru eigingjarnir. Þeim er annt um sjálfa sig, þeim er alveg sama um liðsfélaga sína, þeim er alveg sama um stjórann, starfsfólkið eða aðdáendurna, þeim er annt um sjálfa sig," sagði Rooney.

„Ef þeir fá ekki það sem þeir vilja eru þeir eins og smábörn og kasta dótinu sínu úr barnavagniinum og kenna öðrum en sjálfum sér um. Þeir þurfa að líta í eigin barm."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.