23.10.26 - 22:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þetta er spurningin sem við höfum verið að spyrja okkur"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur verið í vandræðum með sóknarleikinn hjá sér. Liðið er aðeins með sex stig eftir átta umferðir og komst upp úr fallsæti með jafntefli gegn Ipswich í kvöld.
Forest var mun betri aðilinn í kvöld en það gengur illa að nýta færin. Morgan Gibbs-White var spurður út í færanýtinguna.
Forest var mun betri aðilinn í kvöld en það gengur illa að nýta færin. Morgan Gibbs-White var spurður út í færanýtinguna.
„Við höfum oft spilað mjög vel. Aftur í kvöld þá leið manni eins og við höfum fengið mörg færi, við hefðum átt að vinna. Svo framarlega sem við höldum þessu áfram munu sigrarnir koma," sagði Gibbs-White.
„Þetta er spurningin sem við höfum verið að spyrja okkur á æfingu í hverri viku. Við höfum verið að gera skotæfingar og allt. Ef þið hefðuð bara séð hversu vel við vorum að skjóta í gær."
„Þetta er spurningin sem við höfum verið að spyrja okkur á æfingu í hverri viku. Við höfum verið að gera skotæfingar og allt. Ef þið hefðuð bara séð hversu vel við vorum að skjóta í gær."
