Fotbolti.net
23.10.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Onana fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt bílslys

Onana fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt bílslys
Canon

Mynd: EPA

Andre Onana, markvörður Trabzonspor, lenti í alvarlegu bílslysi í gærkvöldi og var fluttur á sjúkrahús.

Daily Star greinir frá þessu en Onana var á leið heim eftir að hafa haldið hreinu í 2-0 sigri gegn Hearts í Sambandsdeildinni.
Þetta var þriggja bíla árekstur en einn bíll keyrði aftan á Onana á miklum hraða sem varð til þess að bíll Onana klessti á bíliinn fyrir framan. Bílarnir eru mjög illa farnir eftir slysið.

Ertugrul Dogan, forseti Trabzonspor, færði tyrkneskum fjölmiðlum jákvæðar fréttir af markverðinum.

„Andre Onana lenti í umferðarslysi fyrr í kvöld. Hann er í lagi og við óskum honum góðs bata.“

Onana er á láni frá Man Utd en hann hefur haldið hreinu í fimm leikjum af tólf á tímabilinu.
Onana fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt bílslys
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.