Fotbolti.net
23.10.26 - 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hörður Snævar áfram á Dalvík og fær nýjan aðstoðarmann

Hörður Snævar áfram á Dalvík og fær nýjan aðstoðarmann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hörður Snævar Jónsson verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net áfram þjálfari Dalvíkur/Reynis og verður næsta tímabil hans þriðja með liðið.

Hörður vildi ekki staðfesta tíðindin þegar fréttamaður hafði samband en sagði að það ætti að skýrast eftir helgi.
Fyrr í dag kom fram að Jói Hreiðars, Jóhann Hilmar Hreiðarsson, yrði ekki áfram hjá Þór/KA hvar hann hefur verið aðstoðarþjálfari síðustu ár.

Dalvíkingurinn er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að taka við sem aðstoðarþjálfari Dalvíkingur, kemur inn fyrir Óskar Bragason sem hefur aðstoðað Hörð síðustu tímabil.

Dalvík/Reynir er fyrsta meistaraflokksliðið sem Hörður Snævar stýrir. Liðið endaði í 5. sæti í fyrra og 4. sæti í ár, en liðið fékk fleiri stig á fyrra árinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jói Hreiðars á leið heim
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.