Fotbolti.net
23.10.26 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fékk skrítið símtal í Bandaríkjunum - „Á Íslandi hefði ekkert verið hægt að gera"

'Það er frábært að vera í Víkingi upp á það að gera'

'Það er frábært að vera í Víkingi upp á það að gera'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það besta sem gat komið fyrir minn feril var að fara þarna út, en örugglega ein versta ákvörðun sem skólinn gat tekið var að fá mig í liðið," segir Sveinn Margeir Hauksson og hlær.

Hann ræddi við Fótbolta.net í dag um síðustu tvö ár á ferlinum en stór hluti af þeim tíma litaðist af meiðslum.

Hann var meiddur á hné sumarið 2024 og eftir tímabilið í háskólatímabilið þá um haustið kom í ljós að stór brjóskskemmd væri í vinstra hné. Hann þurfti að fara í tvær aðgerðir og sneri aftur á völlinn í mars á þessu ári.

Hann kom í Víking frá KA eftir tímabilið 2024 en spilaði ekki sinn fyrsta deildarleik með liðinu fyrr en í júlí á þessu ári.
Skorað bestu mörkin sín í Kópavogi - Fékk harða gagnrýni fyrir þremur árum
TENGT EFNI

Skorað bestu mörkin sín í Kópavogi - Fékk harða gagnrýni fyrir þremur árum

Leit á tímabilið sem endurkomutímabil
Ertu sáttur við þetta hálfa tímabil með Víkingi?

„Já, ég verð að segja það. Ég kem inn í þetta tímabil ósjálfrátt eins og endurkomutímabil. Auðvitað vill maður alltaf gera eins vel og hægt er en þetta tekur tíma. Ég hefði verið til í að sýna aðeins betri hliðar bæði hjá KA og Víkingi í sumar en ég var búinn að vera frá í eitt og hálft ár og byrjaði ekki að æfa fyrr en í mars. Markmiðin fyrir tímabilið voru frekar að vera til taks í eins marga leiki og hægt væri, annað væri bónus eftir svona stór meiðsli. Ég var held ég til taks í allt sumar og úr því er ég mjög sáttur og vonast til að geta byggt á þessu í vetur og næsta sumar," segir Sveinn Margeir sem mun ásamt öðrum Víkingum á morgun taka á móti Íslandsmeistaraskildinum.

Hjá Víkingi hefur Dalvíkingurinn skorað tvö mörk í deildinni og alls komið við sögu í tíu deildarleikjum og þremur Evrópuleikjum með Íslandsmeisturunum.

Mikið lán að hafa verið í Bandaríkjunum
Hvað getur þú sagt um meiðslin?

„Þetta er pínu grillað. Ég fór út í háskólann í Bandaríkjunum sumarið 2024. Ég hafði fundið fyrir einhverjum bólgum í hné áður en ég fór út. Ég fór í myndatöku áður en ég fór út og þá kom í ljós brjóskskemmd í hnénu. Þegar leið á tímabilið úti þá skildi ég ekki hvað væri í gangi, ég var orðinn miklu hægari en allir á vellinum og gat takmarkað hreyft mig. Ég var verkjalaus en alltaf að glíma við einhverjar bólgu í hnénu. Eftir tímabilið í Bandaríkjunum fór ég aftur í myndatöku og þá kom í ljós að ég væri með risa brjóskskemmd í hnénu, tveir sentímetrar í þvermál. Brjóskið var alveg farið og þetta komið bein í bein."

„Á Íslandi hefði ekkert verið hægt að gera en í Bandaríkjunum bauðst mér að bíða eftir líffæragjafa. Það tók við smá bið og í mars 2025 fæ ég hringingu að gluggi hefði opnast. Það var skrítið símtal að fá þar sem ég vissi að líffæragjafinn þyrfti að vera á svipuðum aldri og ég. Ég fór í aðgerð og gert ráð fyrir að endurkoman tæki um níu mánuði. Endurkoman gekk frekar vel yfir sumarið en það kom bakslag og ég þurfti að fara í aðra aðgerð í október. Það var svo ekki fyrr en í æfingaferðinni núna í mars með Víkingi sem ég byrja að æfa aftur. Þetta var því tæplega eitt og hálft ár frá fótbolta."


Hafði misst 40% kraft
Sveinn Margeir fann ekki fyrir sársauka en fann fyrir að hnéð væri bólgið.

„Ég tók styrktarpróf fyrir tímabilið í Bandaríkjunum og svo aftur eftir tímabilið. Þá kom í ljós að ég hefði misst 40% kraft bæði framan og aftan í læri á vinstri fætinum sem þei fannst frekar grunsamlegt. Eftir það var ég sendur í myndatöku."

„Auðvitað finnur maður þegar það er mikil bólga að það sé skrítið að hreyfa sig, en þetta var ekki þannig að ég væri þjáður."


Eins og hola í malbiki
Veistu af hverju það kemur brjóskskemmd?

„Nei, ég veit það ekki alveg. Læknunum úti fannst þetta frekar skrítið. Þau kalla þetta 'pothole defect'. Þetta er bara eins og hola í malbiki, brjóskið er rennislétt alls staðar en svo kemur risagat, eins og eitthvað hafi mölvast. Ég er þakklátur fyrir að hafa verið þarna úti þegar þetta uppgötvaðist."

Frábær ákvörðun að fara út í nám
Hann var í meistaranámi í fjármálaverkfræði við UCLA.

„Það var klárlega frábær ákvörðun að hafa farið þangað. Það er erfitt að lýsa því hvernig þetta er þarna úti, þetta er mjög stórt, öll umgjörð. Það er svakalegur aðgangur að lækna og sjúkrateymi og ég nýtti mér það. Ég er mjög sáttur með þetta, gat verið í hálfgerðu atvinnumannaumhverfi og kláraði á sama tíma flotta gráðu."

Naut þess að spila með KA en hefði viljað getað gert meira
Snemma móts var Sveinn Margeir lánaður til KA en þar hafði hann einmitt spilað á árunum 2020-24. Hann skoraði þrjú mörk í tólf deildarleikjum með KA og tvö þeirra komu í lokaleiknum gegn ÍA.

„Þetta var fínn tími. Auðvitað hefði maður viljað að gengið hefði verið betra. Mér leið alltaf eins og við í KA ættum fullt inni. Það er komið á þann stað núna að það verður alvöru barátta á morgun. Ég naut þess mikið að vera með félögunum. Ég var hjá KA 2020-24 og þekkti allt vel, leikmenn, þjálfara og stjórn. Ég held það hafi verið besta lendingin fyrir mig og KA, ég gat komist í umhverfi þar sem ég fékk að spila eftir eitt og hálft ár í meiðslum og á móti gat ég reynt að hjálpa KA. Ég hefði viljað getað gert aðeins meira, en það fór bara eins og það fór."

Grunaði að hann yrði kallaður til baka
Vissir þú að þú yrðir kallaður til baka?

„Það var umræðan þegar ég fór á lán að ég kæmi til baka í glugganum og KA vissi það. En svo gengur fáránlega vel hjá Víkingi og brjáluð samkeppni, þá vissi maður ekki alveg hvernig staðan yrði. Ég var svo kallaður til baka í júlí."

Blendin tilfinning að vera kallaður til baka
Var eitthvað smá svekkelsi að vera kallaður til baka í Víkingi þar sem það var líklegra að þú myndir spila minna í hverjum leik en hjá KA?

„Ég myndi ekki segja svekkelsi, það er margt í þessu. Mig langaði að koma í Víking og spila með liðsfélögunum þar. Það var að ganga vel og stórir hlutir í boði bæði í Evrópu og deildinni. Þó að ég hafi ekki séð fyrir mér að ég myndi spila 90 mínútur í öllum leikjum þá vill maður alltaf vera í umhverfi þar sem er samkeppni og það er frábært að vera í Víkingi upp á það að gera."

„Það sem beit meira var að fara frá KA á þessum tímapunkti, liðið neðarlega í deildinni. Það var erfiðast við þetta. Mér fannst ömurlegt að fara frá ka á þessum tímapunkti en samt spennandi að fara í Víking."


Vonar að KA haldi sér uppi
Hvernig heldurðu að þetta verði á morgun með Þór og KA?

„Ég verð að segja að KA heldur sér uppi, verð að vona það og 'manifesta' það fyrir mína félaga og mitt gamla félag."

Geggjað að upplifa ríginn
Hvernig var að spila leikinn á móti Þór í vor?

„Það var geggjað. Maður hafði aldrei upplifað þennan alvöru ríg. Auðvitað spiluðum við alltaf innbyrðis í Kjarnafæðimótinu, en það er allt annað en þessir leikir. Það er glatað að deildin sé að fara missa þennan ríg, en frábært að fá að spila þennan fyrsta leik milli liðanna."

Reynir alltaf að gera hlutina eins vel og hann getur
Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér, hefur þú strax sett þér markmið fyrir næsta tímabil?

„Maður er alltaf með einhver markmið. Ég reyni að gera alltaf hlutina eins vel og ég get og sé hvað gerist. Ég horfi ekki til næsta tímabils og hugsa að ég verði að skora ákveðið mörg mörk eða gefa ákveðið margar stóðsendingar. Markmiðið alltaf að skila eins góðri frammistöðu og ég get og uppskera eftir því."

Velgengi Daníels ekki komið á óvart
Liðsfélagi þinn frá KA og núverandi liðsfélagi í Víkingi, Daníel Hafsteinsson, hefur tvö ár í röð verið valinn i lið ársins og spilað frábærlega með Víkingi. Hvernig er að fylgjast með honum og spila með honum?

„Ég æfði og spilaði með honum í KA og vissi alltaf hvað hann gat, það hefur því ekki komið mér á óvart hversu vel hefur gengið hjá honum eftir komuna í Víking. Það er alltaf gaman að spila með honum og ég hef bara trú á að hann verði ennþá betri," segir Sveinn Margeir.
Hefur skorað tvö mörk fyrir Íslandsmeistarana í tíu deildarleikum.

Hefur skorað tvö mörk fyrir Íslandsmeistarana í tíu deildarleikum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn Margeir með dóttur sinni eftir leik.

Sveinn Margeir með dóttur sinni eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Út frá því er ég mjög sáttur og ánægður með tímabilið'

'Út frá því er ég mjög sáttur og ánægður með tímabilið'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk skrítið símtal í Bandaríkjunum - „Á Íslandi hefði ekkert verið hægt að gera"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði tvö mörk í kveðjuleiknum með KA.

Skoraði tvö mörk í kveðjuleiknum með KA.

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Ég hefði viljað getað gert aðeins meira, en það fór bara eins og það fór

Ég hefði viljað getað gert aðeins meira, en það fór bara eins og það fór

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik Þórs og KA í maí.

Úr leik Þórs og KA í maí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Vonar að KA haldi sér uppi.

Vonar að KA haldi sér uppi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lék með KA fyrri hluta sumars 2024 og fór svo út til Los Angerles.

Lék með KA fyrri hluta sumars 2024 og fór svo út til Los Angerles.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég reyni að gera alltaf hlutina eins vel og ég get og sé hvað gerist'

'Ég reyni að gera alltaf hlutina eins vel og ég get og sé hvað gerist'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel hefur verið frábær með Víkingi.

Daníel hefur verið frábær með Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.