23.10.26 - 22:20
Magnús Atlason
Elísa eftir síðasta leikinn á ferlinum: Erfitt að slíta sig algjörlega frá þessu
Auglýsing

Elísa Viðarsdóttir, leikmaður Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísa Viðarsdóttir spilaði sinn síðasta leik á ferlinum þegar Breiðablik sigraði FH 6-2 á Eikarvellinum. Hún var tekin af velli með heiðursskiptingu á 62. mínútu og uppskar mikið standandi klapp úr stúkunni.
Lestu um leikinn: Breiðablik 6 - 2 FH
"Ólýsanleg tilfinning að fá að enda þetta svona, með skjöldinn í höndunum. Eftir farsælan og góðan feril að ganga út úr þessu algjörlega á eigin forsendum."
"Er eitthvað hægt að enda ferilinn eitthvað betur en þetta."
"Það eru allskonar leiðir að enda ferilinn en þetta er ein mjög góð leið allavega."
Er einhver sérstakur hápunktur á ferli Elísu?
"Það eru margir hápunktar í gegnum þetta allt saman. Ef maður lítur snöggt á það þá er það að sjálfsögðu EM með kvennalandsliðinu og svo var það kannski tvöföldu meistararnir 2019. Þar sem ég vann titilinn með Margréti (Láru Viðarsdóttur) systur minni og var nýkomin frá því að fæða barn og slíta krossband. Það er svona fljótt á litið."
Sér Elísa fram á að starfa eitthvað meira í tengslum við fótbolta eftir að hún leggur skóna á hilluna?
"Já alveg eflaust verður maður eitthvað viðloðandi en þetta er náttúrulega í blóðinu og það er erfitt að slíta sig algjörlega frá þessu."