Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 24. nóvember 2020 14:07
Magnús Már Einarsson
Salah með Liverpool á morgun
Mohamed Salah snýr væntanlega aftur í lið Liverpool gegn Atalanta í Meistaradeildinni annað kvöld.

Salah greindist með kórónuveiruna í Egyptalandi á dögunum.

Salah sneri aftur til Englands fyrir helgi en hann hefur nú jafnað sig og hafið æfingar að nýju.

„Mo æfði með liðinu og leið vel. Öll próf hafa verið neikvæð og ef ekkert breytist þá er hann klár. Við sjáum hvernig við getum náð að nýta okkur það," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.

Liverpool trónir á toppi síns riðils í Meistaradeildinni, hefur unnið alla þrjá leiki sína.
Athugasemdir
banner