Fotbolti.net
04.10.26 - 13:59
Brynjar Ingi Erluson

Efnahagsráðherra blandar sér í Ronaldo-málið - „Þjóðinni afar verðmætur“

Efnahagsráðherra blandar sér í Ronaldo-málið - „Þjóðinni afar verðmætur“
Canon

Mynd: EPA

Manuel Castro Almeida, efnahags- og byggðamálaráðherra Portúgals, hefur blandað sér í umræðuna um stöðu Cristiano Ronaldo hjá landsliðinu.
Portúgalar skiptast í fylkingar vegna Ronaldo
TENGT EFNI

Portúgalar skiptast í fylkingar vegna Ronaldo

Ronaldo-málið er stærsta umræðuefnið í Portúgal þessa dagana. Hann yfirgaf landsliðshópinn eftir brotin loforð og portúgalska fótboltasambandið hefur verið gagnrýnt fyrir framkomuna við besta leikmann í sögu þjóðarinnar.

Almeida, sem hefur verið efnahags- og byggðamálaráðherra Portúgals frá 2024, telur mistök að koma svona fram við Ronaldo. Hann segir framherjann hafa átt stóran þátt í að koma landinu á kortið.

„Cristiano Ronaldo hefur gert gríðarlega mikið til að kynna Portúgal og margir þekkja landið aðeins vegna hans. Það má segja að hann sé frægasta vörumerki þjóðarinnar,“ sagði Almeida.

„Hann er þjóðinni afar verðmætur og til mikils gagns. Það væri því gott fyrir Portúgal að geta áfram notið krafta hans.“

„Cristiano er gríðarlega mikilvægur fyrir ímynd og orðspor Portúgals og það væri mjög gott fyrir landið að geta áfram notið góðs af því,“
sagði Almeida.

Ummælin auka enn á pressuna á portúgalska fótboltasambandið að ná sáttum við Ronaldo. Sambandið hefur skipulagt sáttafund hans og Jorge Jesus landsliðsþjálfara en verði af honum verður það ekki fyrr en að landsleikjaverkefninu loknu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.