Granit Xhaka er 29 ára gamall miðjumaður Arsenal. Hann væri opinn fyrir því að snúa aftur til Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi.
Xhaka rennur út á samningi við Arsenal sumarið 2014.
Xhaka rennur út á samningi við Arsenal sumarið 2014.
Hann sagði í Mit Geredet hlaðvarpinu: „Ég er nýbúinn að framlengja og á tvö og hálft ár eftir af samningnum."
„Þegar hann rennur út verð ég 32 ára gamall og ef Max Eberl [yfirmaður íþróttamála hjá Gladbach] vill fá mig aftur þegar ég er 32 ára þá verða dyrnar opnar frá mér séð," sagði Xhaka.
Xhaka er sem stendur frá vegna hnémeiðsla en gæti snúið til baka seint í desember.
Hann lék með Gladbach á árunum 2012-2016 en fór sumarið 2016 til Arsenal.
Athugasemdir