Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. janúar 2022 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Crystal Palace ákveðið í að landa van de Beek
Mynd: EPA
Crystal Palace ætlar sér að næla í hollenska miðjumanninn Donny van de Beek á láni frá Manchester United áður en glugginn lokar en þetta kemur fram á Sky Sports.

Van de Beek hefur fengið takmarkaðan spiltíma bæði undir stjórn Ole Gunnar Solskjær og síðan Ralf Rangnick.

Hollendingurinn var keyptur frá Ajax fyrir 39 milljónir punda fyrir tveimur árum en er nú að hugsa sér til hreyfings.

Sky Sports segir frá því að Crystal Palace ætli sér að fá hann á láni út leiktíðina og vonast til að geta gengið frá þeim málum áður en glugginn lokar á mánudaginn.

Van de Beek hefur einnig verið orðaður við Newcastle United og Valencia.
Athugasemdir
banner