Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. febrúar 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale sendir batakveðjur á Tiger Woods
Gareth Bale, leikmaður Tottenham.
Gareth Bale, leikmaður Tottenham.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, leikmaður Tottenham á Englandi, hefur sent batakveðjur á Tiger Woods, einn besta golfleikara sögunnar.

Woods lenti í slæmu bílslysi í Los Angeles á þriðjudag. Hann var í einn í bílnum en hann þurfti að gangast undir aðgerð vegna áverka á hægri fæti.

Margir hafa óskað þessum magnaða kylfingi góðs bata á samfélagsmiðlum. Þar á meðal er Bale, sem er mikill golfari sjálfur.

„Hugsa til og bið fyrir Tiger Woods. Láttu þér batna fljótt meistari," skrifaði Bale á Twitter.

Sjá einnig:
Bale opinn fyrir MLS - Elskar að spila golf í Los Angeles


Athugasemdir
banner
banner
banner