Fotbolti.net
25.07.19 - 22:35
Þorgeir Leó Gunnarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Arnar Halls: Þetta var baráttuleikur

Auglýsing
Arnar Halls þjálfari Aftureldingar gat brosað í leikslok.

Arnar Halls þjálfari Aftureldingar gat brosað í leikslok.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding vann mikilvægan sigur á Keflavík á heimavelli í kvöld í 14.umferð Inkasso-deildar karla. Sigurinn var heimamönnum afar kærkominn eftir erfið úrslit að undanförnu. Arnar Hallsson þjálfari Mosfellinga var að vonum kátur í leikslok.

„Tilfinningin er óviðjafnanleg. Þetta er betra en flest sem ég þekki bara í lífinu. Að leggja allt í leiki og hafa eitthvað út úr því" Sagði Arnar.
Mosfellingar voru þéttir í leiknum og vörðust afar vel. Þeir fengu þó sín færi og náðu inn markinu sem færði þeim sigurinn. Aðspurður um leikinn hafði Arnar þetta að segja „Þetta var baráttuleikur og svona mikil stöðubarátta og lítið um opnanir hjá báðum liðum. Mér fannst þetta vera lærdómsferli vegna þess að fyrri leikurinn var þannig að þeir flengdu okkur 5-0 og breikuðu á okkur endalaust. Ég verð að segja það að mínir drengir þeir greinilega lærðu af þessu vegna þess að við lokuðum á flest það sem þeir buðu upp á"

Nánar er rætt við Arnar í viðtalinu hér fyrir ofan. Þar er hann meðal annars spurður út í stöðuna á hópnum en Afturelding missti þrjá leikmenn útaf í kvöld vegna meiðsla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.