Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 25. júlí 2020 07:30
Aksentije Milisic
Eddie Howe gefur í skyn að hann verður áfram hjá Bournemouth
Mynd: Getty Images
Eddie Howe, stjóri Bournemouth, hefur gefið það í skyn að hann verði áfram stjóri Bournemouth sama hvað gerist í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Bournemouth þarf að vinna Everton á sunnudaginn kemur og vonast eftir því að Watford tapi gegn Arsenal og Aston Villa tapi gegn West Ham á sama tíma.

„Sama hvað gerist á sunnudaginn, þá þurfum við að setjast niður og ræða saman eftir leikinn og ákveða næstu skref," sagði Eddie.

„Við trúum að við vinnu okkar leik og það er það eina sem við getum gert í stöðunni."

„Mín hollusta gagnvart Bournemouth hefur aldrei breyst frá fyrsta degi. Ég geri mitt besta fyrir þetta félag og það mun ekki breytast."

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner