25.08.19 - 10:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leik ÍBV og HK/Víkings frestað

Ekki leikið í Vestmannaeyjum í dag. Myndin er ekki frá því í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Ekki leikið í Vestmannaeyjum í dag. Myndin er ekki frá því í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

ÍBV og HK/Víkingur áttu að mætast í Pepsi Max-deild kvenna klukkan 14:00 í dag í Vestmannaeyjum.
Gul viðvörun var á Suðurlandi og spáin var ekki sérstök. Fyrir tæpum klukkutíma síðan var staðfest að leikurinn færi ekki fram í dag.
Lið HK/Víkings var samkvæmt @EinarGudna á Twitter komnar í gegnum Selfoss í átt að Landeyjahöfn þegar fréttirnar bárust þeim í morgun.

Búið að fresta
— Haraldur Haraldsson (@HarHaralds) August 25, 2019
Stelpurnar voru staddar mitt á milli Selfoss og Hellu þegar þær fengu fréttirnar. Góð stemning í rútunni
— Einar Gudnason (@EinarGudna) August 25, 2019