Fotbolti.net
26.02.20 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Aðeins sjónvarpstökumenn mega mæta á San Siro

San Siro.

San Siro.

Canon

Mynd: Getty Images

Leikur Inter og Ludogorets í Evrópudeildinni á morgun verður leikinn fyrir luktum dyrum vegna dreifingar kórónaveirunnar. Engir áhorfendur verða á leiknum og þá mega íþróttafréttamenn ekki vera viðstaddir leikinn.

Engin áhætta er tekin en veiran hefur greinst á Ítalíu og þar hafa ellefu látist. Allir hinna látnu voru yfir 62 ára aldri og með undirliggjandi heilsufarsvandamál.
Aðeins sjónvarpstökumenn sem eiga að mynda leikinn fyrir beina útsendingu mega mæta á leikinn .

Það verða því ekki haldnir neinir fréttamannafundir í kringum leikinn.

Leikjum í ítölsku A-deildinni var frestað um síðustu helgi og óvíst hvað verður gert varðandi næstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.