mið 26. júní 2019 08:00
Arnar Helgi Magnússon
Pamela Anderson kallar Rami skrímsli
Mynd: Getty Images
Pamela Anderson og Adil Rami, franskur varnarmaður Marseille, hafa nú slitið sambandi sínu eftir að hafa verið saman í rúmlega tvö ár.

Þetta opinberaði Pamela á Instagram-reikning sínum þar sem að hún birti mynd af sér og Rami saman en franski leikmaðurinn hefur verið að halda framhjá.

„Það er erfitt að horfast í augu við þetta. Síðustu tvö ár hefur verið logið að mér. Ég trúði því og var látin trúa því að þetta væri raunveruleg ást. Hann er búinn að lifa tvöföldu lífi," segir Pamela á Instagram.

Rami á að baki 36 landsleiki fyrir Frakka og var til að mynda hluti af 23 manna hóp liðsins sem að sigraði Heimsmeistaramótið í fyrra.

„Hann er búinn að ljúga að öllum. Hvernig er þetta hægt? Að leika á hjörtu og hug tveggja kvenna á sama tíma,"

Instagram-færslu Pamelu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner