Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 26. júní 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Sandra fagnar allri umræðu - „Það á að halda öllum á tánum"
Icelandair
Sandra Sigurðardóttir
Sandra Sigurðardóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðskonan Sandra Sigurðardóttir segist fagna allri umræðu um markvarðarstöðu landsliðsins en hún, ásamt hópnum, undirbýr sig nú fyrir Evrópumótið sem fer fram á Englandi í næsta mánuði.

Sandra hefur verið markvörður númer eitt hjá Íslandi síðustu ár en hún fær þó verðuga samkeppni fyrir hennar fjórða stórmót með landsliðinu.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, leikmaður Bayern München, kemur einnig til greina sem aðalmarkvörður liðsins en Sandra fagnar samkeppninni og segir þetta halda leikmönnum á tánum.

„Ég myndi segja að ég væri mjög dugleg að æfa almennt. Ég var vissulega í smá meiðslabrasi í vetur og það var fókus á að ná mér út úr því. Ég þurfti að styrkja mig og gera æfingar sem skipta máli þar og svo bara halda skrokknum í toppstandi. Ég æfi yfirleitt mikið og hef gaman af því."

„Nei, ég fagna allri umræðu. Við erum vissulega í samkeppnisstöðu eins og allir hinar í liðinu og það á að vera umræða um það, hvort sem það sé markmannsstaðan eða önnur staða og það er hið besta mál. Það á að halda öllum á tánum."

„Samkeppni er bara samkeppni og ég tek henni bara. Við erum þrír frábærir markmenn og svo eru það þjálfararnir sem velja. Við erum allar að gera okkar besta og við viljum allar spila. Maður einblínir á það og reynir að 'performa' á æfingum og í þeim leikjum sem maður fær. Ég er bara ánægð með samkeppni og verð tilbúin í þetta,"
sagði Sandra við Fótbolta.net.

Sandra hefur spilað 41 landsleik fyrir Ísland á meðan Cecilía hefur spilað 8 leiki. Telma Ívarsdóttir er á meðan með einn landsleik en sá leikur kom í 2-1 sigri á Tékklandi í SheBelieves-bikarnum í febrúar.
„Vildi að þetta hefði verið svona þegar ég var yngri"
Athugasemdir
banner
banner