Fotbolti.net
26.07.20 - 09:20
Ívan Guðjón Baldursson

Mullins: Einbeittir að eigin frammistöðu

Mullins: Einbeittir að eigin frammistöðu
Canon

Mynd: Getty Images

Hayden Mullins stýrir Watford út tímabilið eftir að Nigel Pearson var rekinn úr stjórastarfinu eftir tap gegn West Ham fyrir rúmri viku.
Watford getur enn bjargað sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni er liðið heimsækir Arsenal í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fer fram í dag.

Það gæti orðið erfið þraut fyrir Watford þó andstæðingarnir séu aðeins að spila uppá stoltið. Watford er jafnt Aston Villa á stigum en með aðeins lakari markatölu eins og sést á stöðutöflunni hér fyrir neðan.

„Ég held að strákarnir hætti að hugsa um Aston Villa um leið og flautað verður til leiks á Emirates. Þeir þurfa að einbeita sér að starfinu innan vallar, þeir hafa ekki tíma til að hugsa um hvað er að gerast utan hans," segir Mullins.

Vanalega eru það læti stuðningsmanna sem gefa leikmönnum upplýsingar um stöðu annarra leikja í lokaumferðinni en í ár eru engir stuðningsmenn á pöllunum.

„Við verðum held ég ekki með mann sem horfir á hina tvo leikina sem skipta okkur máli. Við munum fylgjast með stöðunni en verðum ekki með mann að horfa á leikina.

„Við verðum að einbeita okkur að eigin frammistöðu, við megum ekki eyða kröftum í að pæla í einhverjum öðrum leikjum."

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.